Klukkan

Auglýsing

Jeff Buckley

Fate is gonna find you love in a glass of champagne

Iđnskólinn í Hafnarfirđi "HERE I COME!........

07. maí 2009 klukkan 22:23

....eftir ár! :)

Fór í mitt langþráða mæðraorlof síðustu helgi, váví hvað var gaman! Thank you thank you! En mikið var gott að koma til baka líka og knúsa lilla prump:)
Er búin að vera að kafa ofan í skóla og háskóla og hvert skal stefna o.s.frv. og er ég komin að endanlegri niðurstöðu, finally! Eða semsagt bara með næsta skóla ekki aaalveg meira nám en það hlítur að koma þegar nær dregur. Mikið hlakka ég til að flytja aftur til Reykjavíkur og fara að læra það sem mig langar til að læra. Sigurður Pálmi fer þá öruglega í leikskóla og síðan til Danmerkur og byrjar þar öruglega í skóla, haha... Laaangt þangað til en þetta er víst hrikalega fljótt að líða.

Yndislegt veðrið í dag, hmmm!

Gummi: ég er ekki enn búin að fara með pakkann á pósthúsið, will do á morgun! :)

Ég komst á séns síðustu helgi....með stelpu! Ákvað þó að gera ekkert í málunum heldur fór ein heim, haha! Meiri dúllan samt.

Sigurður Pálmi er farinn að skríða út um allt og tæta í öllu sem má ekki tæta í, étur rúsínur eins og hann fái borgað fyrir það en má víst ekki fá meira en 50 g á viku og reyni ég að fara eftir þessum leíðbeiningum:) 

Ísland er landið; Upplifum og njótum! er setning úr auglýsingu.... hversu mikið Íslendingar njóti Íslands nú veit ég ei!

Er á námskeiði sem er skylda svo maður fái atvinnuleysisbætur og var ekkert neitt sérstaklega spennandi fyrst, en mikið kom það mér á óvart! Tókum "viðurkennt" próf til að finna út í hverju maður er hæfastur í og hvert maður stefnir og fær maður síðan "endanlega" niðurstöðu sem er mjög skemmtilegt. Opnar fyrir manni nýja sýn á hvað það er mikið sem hægt er að gera og það eina sem stendur í vegi fyrir því að gera það sem manni langar til er maður sjálfur!  Halelúja!!!! 

Búin að kaupa miða á Eistnaflug! jibbidú!

Þessi blogg eru nú óttarlega merkingarlaus og þýðingarlítil en "what the hell"!

Bless í bili

 

Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
2 athugasemdir

Feitir smáfuglar og hollustuvörur!

31. mars 2009 klukkan 10:10
Opnaði svalahurðina um daginn og við mér blasti vera á "handriðinu". Hélt fyrst að það væri köttur búinn að hoppa upp á aðra hæð en þetta var SPIKfeitur smáfugl, greyið. Hann var ótrúlega feitur og fór ég að spá hvort þeir springi ekki bara á endanum?

Hlynur komst inn í kvikmyndaskólann í Köben!!! Er einn af þessum 6 af 200 takk fyrir, góðan daginn.

SP stækkar og stækkar og farinn að "öskra" mikið, held hann verði söngvari. Planið er allavega að hann verði næsti Jeff Buckley! Var að kaupa hrikalega sæta sumarhatta á hann, guð hvað það verður gaman í sumar. Lítið ættarmót verður hjá okkur upp í Lóni og síðan verður nýja sundlaugin í fullri notkun.

Er hugsanlega búin að fá nýja íbúð í júlí, vonandi gengur það. Thank God!

Flyt hugsanlega í bæinn ágúst 2010. Ætla að reyna að koma mér í Iðnskólann á hönnunarbraut og taka hraðnám í því. Svo vonandi drífa sig út til DK og fara í skóla. Þetta er allvega á 5 ára planinu:)

Á bók sem heitr því augljósa og skemmtilega nafni "Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?". Þar eru margar uppskriftir og upplýsingar um hvað þau mega borða á vissum aldri og fróðleikur um hráefnið. Mikið að hráefnunum er lífrænt o.s.frv. sem er auðvitað mjög gott og ætla ég að reyna að venja minn á það að borða hollt og gott. Vandinn við þetta er samt hvað þetta er allt saman alveg furðulega dýrt! Gulrótarsafi 0,75 l á 500 kall, agave sýróp á 1200 kall, kaldpressuð ólífuolía á ca 1400 kall og ég gæti lengi talið. Hrikalegt!

Davíð Oddson bara orðinn uppistandari "prump"!

Hafið það gott! 
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
2 athugasemdir

...og ţađ er kominn mars!

18. mars 2009 klukkan 23:12
Ég á víst bloggsíðu.

Mikið og margt búið að gerast síðan í desember. Jólin voru frábær en nenni nú ekki að tala um þau í miðjum mars.
Sigurður Pálmi(ekki Kári eins og skötuhjú sem eiga heima á Mánarbraut 2 missa oft útúr sér) er orðinn 6 mánaða, hvað varð af tímanum? Ekki langt þangað til ég fer að halda upp á eins árs afmæli, mikið verður það gaman!

Ég er víst atvinnuleysingi eins og margur Íslendingurinn er í dag. Allt gott og blessað samt, get verið lengur heima með kútinn minn:) Mikið hlýtur það samt að vera erfitt fyrir suma, hafa unnið kannski í meira en 30 ár og þurfa svo að hanga heima allt í einu og fara á bætur eins og einhver "aumingji"! 

Hlynur minn elskulegi bróðir er komin í "final 10" hópinn til að komast inn í The Royal Film school í Kaupmannahöfn. Hann kemst inn! Þá ætla ég loksins að heimsækja þau í Köben og ekkert krepputal um það!

Hef mikið verið að spá í að kaupa mér íbúð hér á Höfn. Orðinn hrikalega þreytt á þessari sem ég er í. Í fyrsta lagi er hún orðin of lítil, síðan er "verstareykingaskítastibbufíla" í sameigninni þannig að ég get ekki geymt vaginn þar, í þriðja lagi er eldhús innréttingin hér fúin og ljót og ég gæti lengi talið. Allavega eg vil út! En Hlynsi sagði mér nú samt að gera það ekki og auðvitað er það rétt á margan hátt ég veit, en samt er ennþá pínusmínu lítill hluti af mér sem langar samt að gera þetta. Er búin að breyta öllu í þessari íbúð sem mig langar í í huganum, skrifa allt niður og ef ekki reikna kostnaðinn, haha, hef svo gaman að þessu. En ég á ekki krónu, allavega ekki til að kaupa mér íbúð og 100% lán hljómar eitthvað svo hræðilega! og ég verð ekki á Höfn að eilífu, kem kannski aftur.

Var að horfa á einhverja útlenska stöð um daginn og þá var verið að auglýsa Ariel þvottaefni. Það var sýndur bolur með blett á og sagt "chocolatesouce" og honum hennt inní þvottavélina, svo kom annar bolur með blett og var minnir mig sagt "strawberryeitthvað" og líka hennt ínn í þvottavél. Síðan komu buxur og var blettur á rassinum á þeim og sagt "hot date", verð að segja að mér fannst það frekar óheppileg setning miðað við litinn og staðinn sem bletturinn var á buxunum. Svona eru þessar auglýsingar.

Bless í bili
ibba 
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
2 athugasemdir

Jólin, ó jólin!

21. desember 2008 klukkan 14:45
Hrikalega gaman á Torrini tónleikunum. Var með smá stress í maganum þegar ég labbaði út og skildi þá feðga eftir eina heima með brjóstamjólkina í pelanum. Fór í Háskólabíó, þar var heldur betur margt um manninn. Sá að það var verið að selja áfengi og stalst til að kaupa mér einn bjór, nú má ég það, orðin mamma og má fara í ríkið, haha... "Hlunkaði" mér niður í sætið mitt, kom mér eins vel fyrir og hægt var og fékk mér sopa, ahhhh.... Skömmu seinna kom svaka gella og var eitthvað að spyrjast fyrir um sætin fyrir ofan mig. Síðan sagði hún, "er einhver einn hérna?" Þóttist ekki heyra í henni og gróf mig betur niðrí sætið. "Fyrirgefðu, en ert þú ein?" Anskotinn, hún sá mig! Ég svaraði játandi. "Alveg ALEIN?" Já, svaraði ég aftur, og hugsaði með mér hvort hún vildi ekki gera aðeins meira úr því að ég væri ein. Til að gera langa sögu stutta þá færði ég mig fyrir hana og fór hinu megin í salinn, svo hún og kærastinn hennar gátu setið saman. Ég er svo góðhjörtuð. Kom mér aftur fyrir í "nýja" sætinu mínu, úr kápunni og fékk mér sopa, ahhh..... Maður sem sat fyrir aftan mig pikkaði svo varlega í mig, "Hæ, hérna ert þú ein?" Mama mía! Ég brosti og játaði því. Þá fékk ég aftur nýtt sæti, ekki svo langt frá reyndar því maðurinn vildi auðvitað sita hjá konunni sinni. "Ekkert mál vinurinn" sagði ég þegar hann fór að afsaka "vesenið". Kom mér fyrir í þriðja sætið mitt og fékk mér sopa, ahhhh.... Yndislegir tónleikar.


Jólin fara að skella á, Sigurður Pálmi veit ekkert hvað er að gerast:) Hlynur bróðir var að sýna stuttmyndina sína "jóel" í gær, frábært hjá honum. Alveg hreint magnaðir bræður sem maður á! Svona þegar þeir halda sér á mottunni:)


Gleðileg jól allir saman! 
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
3 athugasemdir

Emilíana Torrini 13.des í Háskólabíó!

26. nóvember 2008 klukkan 14:34
Loksins, loksins!
Hún spilaði síðast hér á Íslandi 2005, þá fór ég og Svava á Borgarfjörð Eystri og skemmtum okkur konunglega í hita og með bjór:) Nældi mér síðan í miða áðan því við verðum akkurat í bænum þessa helgi og ætla ég að fá að kíkja í fyrsta sinn út að kvöldi til. Ég hlakka svo til!

Skírðum síðasta laugardag og gekk allt alveg ljómandi vel, fyrir utan smá væl hjá mínum:) Sigurður Pálmi heitir guttinn og Ída Mekkín heitir litla mús hjá Hlyn og Hildi. Skrítið að fara allt í einu að kalla þau Sigurð og Ídu, hafa alltaf verið "lilli" og "litla mús":) Þau eru svo yndisleg!

Jólin nálgast, mikið er það gaman. Verður erfitt hjá mörgum Íslendingum þessi jól en ég vona nú samt að allir reyni að njóta þess að vera með fjölskyldum og vinum um hátíðirnar, henda allri reiði út um gluggann(ja, eða bara í alþingishúsið) og brosa:)


Kveðja
ibbs 
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Nóvember

04. nóvember 2008 klukkan 15:49
Kominn Nóvember og Lilli að verða 2ja mánaða. Skirnin verður 22.nóv. og verða litlu frændsystkinin skírð saman. Elli(eitt sinn Elli kennari) mun skíra í Hafnarkirkju og verður veislan hjá okkur í Ásgarði. Mikið hlakka ég til!

Jólin nálgast og í fyrsta sinn í langan tíma sem ég er virkilega spennt fyrir þeim. Fyrsti pakkinn sem maður skrifar á "Frá Mömmu og pabba:)

Förum í bæinn 10.des og þá reynum við að heimsækja sem flesta og kaupa jólagjafir í leiðinni.
Haffi fer í bæinn á sunnudaginn á slysavarnarnámskeið og verður fram á föstudag, ég verð að sína hvað ég er hörku góð mamma og spjara mig hér ein með litla kút.

Lítið sem ekkert að frétta, set allt inn núna á www.barnanet.is/6105
Fylgjist með
Ibba 
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
1 athugasemd

Rólegheit

04. október 2008 klukkan 19:20
Ýmsir kostir við það að vera í fæðingarorlofi, auðvitað númer 1, 2, og 100 er að vera með "Lilla", síðan bara það að þurfa ekki að gera neitt:) Get verið algjört letiblóð.

Kreppan mikla! Þakka bara fyrir að hafa ekki tekið erlent lán eða bara lán. Verð skuldlaus í febrúar, takk fyrir. Þá á ég öll launin mín sem ég fæ, það er ekki sjálfgefið!

Gengur rosa vel með litla, vill samt alltaf láta mömmu liggja hjá sér þangað til hann sofnar. Ótrúlegt að hann sé að verða mánaðar gamall, tíminn líður hratt.

Fyndið hvað smekkur manns breytist með árunum(ég að hafa voðalegar áhyggjur af því að ég sé að verða gömul), verð alltaf að horfa á fréttirnar, líka á stöð 2, eeelska Útsvar þáttinn og finnst klukkan orðin alltof margt þegar hún er 12 að miðnætti ef ég er ekki farin að sofa.


Kveðja
Ibba "gamla"

p.s. vil benda ykkur á að skoða síðuna hjá Gumma bró, snilldar kokkur hér á ferð og hann er BRÓÐIR MINN!!! :)   http://icelandicchef.blogspot.com
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
1 athugasemd

Klukk!

26. september 2008 klukkan 23:16

Ætli maður verði ekki að taka þátt í þessu. Anna Jóna klukkaði mig og er eins gott að ég hlýði henni:)


4 störf.

11-11

Bláa Blómið

Best-Fiskur

Spúútnik



4 bíómyndir 

Good Will Hunting

The Bucket List

Virgin Suicides

Almost Famous

(þetta var mjög erfitt)


 4 staðir sem ég hef búið á

Reykjavík

Danmörk

Höfn

(hef bara búið á 3)



4 sjónvarpsþættir

Breaking Bad

Desperate Housewives

Family Guy

Band of Brothers


4 staðir í fríum

Danmörk

Holland

Bjössaróló í Borganesi

Hvalnes


4 netsíður

barnanet.is/6105

mbl.is

myspace.com

flickr.com/photos/haffihaff



fernt matarkyns

humarrisotto

hörpuskel

suðusúkkulaði

gulræturnar í garðinum hjá ömmu


 4 óskastaðir akkúrat núna

Kúra með Haffa uppí rúmi

Heitt bað með kaldan bjór og hlusta á tónlist

Tónleikar í Amsterdam

Eitthvað ferðalag


4 sem ég klukka

Þeir sem nenna:)

Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
3 athugasemdir

Mín orđin mamma:)

14. september 2008 klukkan 09:35
Haldiði ekki að ég hafi átt fallegasta dreng í heimi! Hann kom 11.september klukkan 16:19 og var 16 merkur og 54cm. Algjört yndi, og gekk allt rosa vel og gengur ennþá. Við foreldrarnir svífum á bleiku skýji við erum svo stolt. Takk fyrir allar kveðjurnar, þykir rosalega vænt um það.
Lilli er komin með síðu www.barnanet.is/6105 , endilega kíkið á kútinn:)

Hafið það sem allra best, ég veit að ég geri það.

Mamma
Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
5 athugasemdir

40 vikur og 6 dagar!

10. september 2008 klukkan 11:48
Átti þetta ekki að vera búið?
Allt gengur vel, eða ekki vel, fer eftir hvernig maður lítur á þetta:) Við verðum á Höfn, engin íbúð í Reykjavík og síðan er allt mjög gott hér, Áslaug er alveg frábær. Fyndið hvað maður heldur alltaf að eitthvað sé að gerast við minnstu verki, þá spennist maður allur upp og Haffi sérstaklega líka, haha. Hrikalega fyndið. 
Er byrjuð á fullu í skólanum og fékk 10, takk fyrir, fyrir verkefni í Landafræði. Hefur aldrei verið mín sérgrein, ó nei! 
Tobba frænka er farin aftur til RVK, ætlaði nú eiginlega að fara að stað með hana hérna til að taka á móti. Mamma og Anna Jóna fara á morgun til Noregs í vinnuferð og koma ekki aftur fyrr en á mán. morgun. Týpískt að barnið komi þegar þær eru í burtu. Ef það myndi koma í dag væri kennitalan 10.09.08, það er soldið flott:)
Er ekki full langt gengið ef maður fær sér station bíl aðeins tuttugu ára gömul? hahaha

Vonandi verð ég orðin mamma næst þegar ég skrifa hér. Þangað til, hafið það frábært!

Ingibjörg Lilja Pálmadóttir
3 athugasemdir